Maður einn fór á lestarstöð með töskurnar sínar í höndunum.
Lestarstjórin spurði hvort hann hefur farið á klósettið nýlega.
Hann játaði því og spurði af hverju.
Lestarstjórinn svaraði að það væri ekkert klósett í lestinni.
2 tímum seinna þurfti hann á klósettið.
Maðurinn var ráðalaus hvar hann átti að kúka enn hann hugsaði hvort hann átti að kúka út um gluggann.
Hann stóð á sætinu og setti rassinn út um gluggann og ætlaði að láta allt flakka. Þá kallaði lerstarstjórinn í hátalarann:
“Við erum að fara í jarðgöng. Vinsamlegast setjið hausinn inn og líka þú sköllótti maður með stóra vindilinn í munninum.”
Kona er í lyftu þegar maður kemur inn í lyftuna og rekur olnbogann fast í brjóstið á konunni.
„Afsakaðu mig“ segir maðurinn, „ef hjarta þitt er jafn mjúkt og brjóstin þín þá fyrirgefur þú mér“
„Ekkert mál“ segir konan, „ef getnaðarlimur þinn er jafn harður og olnboginn er ég í íbúð 113“.
Eldri maður fer til læknis, konan ákveður að koma með til að fylgjast með.
Þegar inn á læknastofuna er komið biður segir læknirinn við manni: “Ég þarf saur-, þvag- og sæðissýni frá þér”.
Gamli maðurinn var ekki með heyrnina í lagi hrópar “HA”. Konan reynir að útskýra fyrir honum og hann hrópar aftur “Ha”
Konan hrópar þá til baka: “Læknirinn vill fá nærbuxurnar þínar!”
Sp: Hvað þarf marga bloggar til að skipta um ljósaperu?
Sv: 100.
1 til að skipta um peruna og 99 til að skrifa athugasemdir um hvernig það hefði átt að gera þetta öðruvísi.
SP: Af hverju hætti tannlæknirinn störfum?
SV:Hann reif kjaft!
Vinirnir Vilhjálmur, Jón og Siggi voru á ráðstefnu erlendis, þeir ákváðu því að gera vel við sig og panta flott hótel og fengu herbergi á efstu hæð skýjakljúfurs sem var 75 hæða.
Þegar til hótelsins var komið kom í ljós að lyfturnar voru bilaðar, þeir ákváðu því að skiptast á að halda uppi fjörinu. Vilhjálmur átti að segja brandara í 25 hæðir, Jón átti að syngja í 25 hæðir og svo að lokum átti Siggi að segja sögur í 25 hæðir.
Þeir lögðu af stað brandarar voru sagðir í 25 hæðir, þegar þeir komu á 26 hæð var byrjað að syngja, þegar komið var á 50 hæð var komið að Sigga að segja sögur, hann sagði þeim að hann ætlaði að byrja á sorglegri sögu, nefnilega að hann hafi gleymt lyklinum í lobbýinu.
Sp:Af hverju tiplaði ljóskan á tánum fram hjá lyfjaskápnum?
Sv:Hún vildi ekki vekja svefntöflurnar!
Maður hringir í móðursýkiskasti í sjúkrahúsið, „Konan mín er ólétt og hún er komin með hríðir“
„Er þetta hennar fyrsta barn“ spyr læknirinn
„Nei, fíflið þitt“, svarar maðurinn, „Þetta er maðurinn hennar“. Gamall kemur til læknis og vill fá að vita hvort hann sé enn frjór. Læknirinn lætur hann hafa krukku og biður hann um að koma aftur á morgun með sæðissýnishorn.
Daginn eftir kemur hann með krukkuna tóma. Læknirinn er undrandi og spyr hvernig hafi staðið á þessu.
“Jú fyrst reyndi ég með hægri, svo með vinstri allt kom fyrir ekki. Svo reyndi konan mín með hægri og svo vinstri, meira að segja með munninum. Þá leituðu við til nágrannakonu okkar, hún reyndi með hægri svo með vinstri og munninum og þetta bara gekk ekki.”
“Ha, fékkstu nágrannakonu þína til að hjálpa þér!”, spyr læknirinn alveg undrandi
“Já, við bara gátum ekki opnað helv. krukkuna” sagði gamli maðurinn þá.